Leikir í kvöld

leikir í kvöld, leikirí k völd, leikirík v öld, leikiríkv ö ld, leikiríkvö l d, leikiríkvöl d , l eikiríkvöld , l e ikiríkvöl, le i kiríkvöld, lei k iríkkvöld, leik i ríkvöld, leiki r íkvöld, leikir í kvöld.

Rita ummæli 12. janúar 2009

Æskulýðsfundir á nýju ári 2009

Fyrsti æskulýðsfundurinn árið 2009 verður mánudagskvöldið 12.janúar.
Guð gefi okkur öllum gleðilegt ár.

Ein ummæli 4. janúar 2009

ACTIONARY

Í kvöld, 17.nóv, ætlum við að spila actionary! Það verður bara gaman

“Trúðu mér, ég veit alveg hvað hann er með margar gráður!”

Ein ummæli 17. nóvember 2008

Næsti æskulýðsfundur 3.nóv

hæ hó!
Í gær, 27.okt. kom leynigestur til okkar. Það var enginn annar en Pétur Georg Markan, knattspyrnumaður með meiru og einn af framherjum Fjölnis!!! Það var gaman að fá hann í heimsókn til okkar og hann spjallaði um fótboltann, lífið og tilveruna.

Á næsta fundi verður farið í: ÞEKKIR ÞÚ NAMMIÐ?  Það verður útskýrt á fundinum hvernig það virkar en braðkirtlar koma töluvert við sögu!

Já, sæll!!!

Rita ummæli 28. október 2008

Leynigestur næsta mánudag, 27. okt!

Já, það verður landsfræg, ef ekki heimsþekkt manneskja hjá okkur sem leynigestur næstkomandi mánudagskvöld. Ég lofa ykkur að það verður þess virði að koma og sjá hver þetta er!!!

Amen

3 ummæli 21. október 2008

Fundur næsta mánudag

Næsta mánudag verður ekki leynigestur eins og dagskráin segir, heldur kemur hann viku síðar, eða 27.okt. Hann er enginn annar en Si…… já, nei. Ég má víst ekki segja! :)

Næsta mánudag verða hinsvegar skoðaðar myndirnar úr ljósmyndamaraþoninu og síðan förum við í fullt af leikjum :) Þannig að það verður bara gaman…

Sjáumst

Rita ummæli 15. október 2008

Ljósmyndamaraþon mánudaginn 13.okt

Já sæll!!!!

Á mánudaginn verður ljósmyndamaraþon. Þátttakendur skipta sér sjálfir niður í hópa / lið með 2-5 meðlimum innanborðs. Þetta getið þið verið búin að gera í skólanum. Svo mætið þið, það er nóg að einn aðili úr hópnum sé með myndavél (digital). Á æskulýðsfundinum fáið þið blað með 10 myndefnum sem þið eigið að finna og mynda, komið svo aftur í kirkjuna og myndirnar verða skoðaðar.

Ef einhver mætir en er ekki í liði, þá er það ekkert vandamál. Það komast allir í lið. Bara að muna að taka með sér myndavél :) .

Þetta er svaka gaman.
Hér er slóð að bestu myndunum úr maraþoninu fyrir tveimur árum.

“Hvað er þetta, ég klæddi mig í sultu!”

Rita ummæli 9. október 2008

Næsti fundur æskulýðsfélagsins 6.okt

Þá ætlum við að spila!!! :)

Í boði verður að spila Actionary, Gettu Betur, Trivial Pursuit, Matador, Vist, Olsen Olsen, Veiðimann og margt fleira :)
Ef þið eigið skemmtileg spil megið þið endilega koma með þau með ykkur.
Sjáumst klukkan 20.00

Jááá, sæll!

Rita ummæli 4. október 2008

Óttist ekki - Hræðslumót ÆSKR

Þau sem hafa áhuga á að mæta á Hræðslumotið (Fear Factor) næstkomandi fimmtudagskvöld klukkan 19.45 í Hjallakirkju í Kópavogi verða að hafa samband við mig (Gunna) í síma 820-8728 og skrá sig. Skráningu líkur á hádegi á miðvikudag!!!!!

BÖ!!!

Brá þér?

Rita ummæli 30. september 2008

Leikjafundur í gær

Það var mikið stuð á leikjafundi í gær.

Já, sæll!!!

Rita ummæli 30. september 2008

Fyrri færslur